Framlengir í Árbænum

Arnór Borg Guðjohnsen verður áfram í Árbænum.
Arnór Borg Guðjohnsen verður áfram í Árbænum. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Knattspyrnumaðurinn Arnór Borg Guðjohnsen hefur framlengt samning sinn við Fylki. Arnór, sem er fæddur árið 2000, kom til Fylkis fyrir tímabilið frá velska félaginu Swansea.

Arnór lék 19 leiki með Fylki á síðustu leiktíð og skoraði í þeim fjögur mörk. Arnór er sonur Arnórs Guðjohnsen sem var á sínum tíma einn besti leikmaður Íslands og hálfbróðir Eiðs Smára Guðjohnsen.

Sóknarmaðurinn skoraði tvö mörk í eina U19 ára landsleiknum sínum í 4:1-sigur gegn Albaníu fyrir tveimur árum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert