Fyrirliðinn framlengdi

Anna María Baldursdóttir.
Anna María Baldursdóttir. mbl/Arnþór Birkisson

Knattspyrnukonan Anna María Bald­urs­dótt­ir, fyr­irliði Stjörn­unn­ar, hefur framlengt samning sinn við félagið en hún er einn reyndasti leikmaður Garðbæinga.

Anna hefur leikið 146 leiki fyrir Stjörnuna í efstu deild frá árinu 2010 en hún er 26 ára gömul. Þá á hún að baki níu A-landsleiki fyrir Ísland. Hún náði ekki að spila nema fjóra leiki í úrvalsdeild á síðustu leiktíð eftir að hafa tognað illa aftan í læri rétt áður en mótið hófst. Stjarnan lauk keppni í 6. sæti Pepsi Max-deildarinnar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert