Þróttur fær liðsstyrk frá Breiðabliki

Guðrún Gylða Haralz er komin til Þróttar.
Guðrún Gylða Haralz er komin til Þróttar. mbl.is/Kristinn Magnússon

Þróttur Reykjavík hefur gert samning við knattspyrnukonuna Guðrúnu Gyðu Haralz en hún kemur til félagsins frá Breiðabliki. Guðrún er 21 árs og á að baki 17 leiki í efstu deild. 

Guðrún spilaði tvo leiki með Breiðabliki á síðustu leiktíð en hún hefur einnig leikið með KR, HK/Víkingi og Augnabliki. Þróttur endaði í fimmta sæti Pepsi Max-deildarinnar á síðustu leiktíð. 

Guðrún á 24 leiki að baki með yngri landsliðum Íslands þar sem hún hefur skorað 14 mörk. Þá hefur hún skorað sjö mörk í 21 leik í 1. deild. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert