Þróttarkonur fá liðsauka að vestan

Shae Murison, annar nýju leikmannanna hjá Þrótti, í leik í …
Shae Murison, annar nýju leikmannanna hjá Þrótti, í leik í bandaríska háskólafótboltanum.

Þróttur í Reykjavík hefur gert samning við bandarísku knattspyrnukonurnar Katie Cousins og Shae Murison um að leika með liðinu á komandi tímabili. 

Þær fylla í skörð sterkra erlendra leikmanna sem léku með Þróttarliðinu á síðasta tímabili þegar það kom skemmtilega á óvart sem nýliði og hafnaði í fimmta sæti úrvalsdeildar kvenna, Pepsi Max-deildarinnar.

Katie Cousins er 24 ára miðjumaður og lék með Tennesse-háskólanum í Bandaríkjunum. Hún hefur hlotið fjölda viðurkenninga á sínum ferli og á að baki fjölda leikja með hinu geysisterka U20 ára landsliði Bandaríkjanna og lék m.a. með því á HM U20 kvenna árið 2016. Hún var lykilmaður í sterku liði Tennesse á þeim tíma sem hún lék þar og var tvisvar valinn í úrvalslið allra háskóla í Bandaríkjunum. 

Shae Murison er 22 ára framherji frá Santa Barbara-háskólanum. Hún skoraði 34 mörk í 76 leikjum með keppnisliði skólans, þar með talið 17 mörk í 19 leikjum á fyrsta ári sínu. Það ár var hún valin framherji ársins í keppni bestu háskólanna í vesturhluta Bandaríkjanna og í úrvalslið á sama svæði. Á síðasta ári var hún valin leikmaður ársins í Santa Barbara-háskólanum.  

,,Þetta eru gríðarlega spennandi leikmenn,“ segir Kristján Kristjánsson formaður knattspyrnudeildar Þróttar, í tilkynningu frá félaginu. „Í bland við okkar góða hóp af uppöldum Þrótturum og öðrum leikmönnum sem hafa verið hjá okkur lengi, teljum við þessir leikmenn muni tryggja að Þróttur tefli fram sterku liði á komandi sumri.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert