KA fór illa með Ólafsvíkinga

Ásgeir Sigurgeirsson skoraði tvö mörk.
Ásgeir Sigurgeirsson skoraði tvö mörk. Ljósmynd/Þórir Tryggvason

KA vann sannfærandi 5:0-sigur á Víkingi frá Ólafsvík í Lengjubikar karla í fótbolta í dag. Var leikurinn liður í 1. riðli og var leikið í Akraneshöllinni. 

Nökkvi Þeyr Þórisson skoraði eina mark fyrri hálfleiks en Ásgeir Sigurgeirsson skoraði tvö mörk á fyrstu 20 mínútunum í seinni hálfleik og þess á milli skoruðu Víkingar sjálfsmark og var staðan því orðin 4:0. 

KA-menn voru ekki hættir því belgíski bakvörðurinn Jonathan Hendrickx bætti við fimmta markinu skömmu fyrir leikslok, í fyrsta leik sínum með Akureyrarliðinu, og þar við sat.

Úrvalsdeildarlið KA er með þrjú stig eftir tvo leiki en fyrstudeildarlið Víkings er án stiga. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert