Ásgeir tryggði KA-mönnum sigur

Leikmenn KA fanga í kvöld.
Leikmenn KA fanga í kvöld. Ljómynd/Þórir Tryggvason

Ásgeir Sigurgeirsson var hetja KA-manna í 2:1-sigri á HK í Boganum í Lengjubikar karla í fótbolta í kvöld. 

Bjarki Gunnarsson kom HK yfir strax á sjöttu mínútu en Hallgrímur Mar Steingrímsson jafnaði á 33. mínútu með marki beint úr aukaspyrnu.

Staðan í hálfleik var 1:1 og þannig var hún fram á 86. mínútu þegar Ásgeir Sigurgeirsson skoraði sigurmarkið. 

Bæði lið eru með sex stig eftir þrjá leiki, en Valur er með sex stig eftir tvo leiki. Upplýsingar um markaskorara fengust á Fótbolta.net. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert