Mæta Mexíkó í Bandaríkjunum

Aron Einar Gunnarsson og liðsfélagar hans í íslenska liðinu eru …
Aron Einar Gunnarsson og liðsfélagar hans í íslenska liðinu eru á leið til Bandaríkjanna. AFP

Íslenska karlalandsliðið í knattspyrnu mætir Mexíkó í vináttulandsleik hinn 30. maí.

Þetta staðfesti KSÍ, Knattspyrnusamband Íslands, á samfélagsmiðlum sínum í dag en leikurinn fer fram í Arlington í Texas í Bandaríkjunum.

Þetta verður í fimmta sinn sem liðin mætast í vináttulandsleik en tvívegis hafa liðin gert jafntefli og tvívegis hefur Mexíkó fagnað sigri.

Þá mætir íslenska liðið Færeyjum í vináttulandsleik 4. júní á Þórsvelli í Færeyjum og loks Póllandi 8. júní í Poznan í Póllandi.

Allir þrír leikirnir eru hluti af undirbúningi íslenska liðsins fyrir undankeppni HM sem Ísland mætir Rúmeníu, Norður-Makedóníu og Þýskalandi á Laugardalsvelli í september.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert