Byrjunarlið Íslands: 17 ára í markinu

Cecilía Rán Rúnarsdóttir fær tækifærið í markinu.
Cecilía Rán Rúnarsdóttir fær tækifærið í markinu. mbl.is/Haraldur Jónasson/Hari

Knattspyrnusamband Íslands hefur opinberað fyrsta byrjunarlið Þorsteins Halldórssonar sem þjálfara kvennalandsliðsins en liðið mætir Ítalíu í vináttuleik ytra klukkan 14. 

Hin 17 ára gamla Cecilía Rán Rúnarsdóttir fær tækifæri í markinu og leikur sinn annan landsleik og Áslaug Munda Gunnlaugsdóttir fær tækifæri í vinstri bakverði og leikur sinn þriðja landsleik. 

Byrjunarlið Íslands: 

Markvörður: Cecilía Rán Rúnarsdóttir.

Vörn: Elísa Viðarsdóttir, Glódís Perla Viggósdóttir, Guðrún Arnardóttir, Áslaug Munda Gunnlaugsdóttir. 

Miðja: Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir, Alexandra Jóhannsdóttir, Karólína Lea Vilhjálmsdóttir.

Sókn: Hlín Eiríksdóttir, Elín Metta Jensen, Agla María Albertsdóttir. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert