Bikarkeppnin hefst á föstudaginn

Þróttarar mæta KB í fyrstu umferð bikarkeppninnar.
Þróttarar mæta KB í fyrstu umferð bikarkeppninnar. mbl.is/Arnþór Birkisson

Keppni í bikarkeppni karla í knattspyrnu, Mjólkurbikarnum, hefst á föstudaginn kemur með fjórtán leikjum.

Upphaflega átti bikarkeppnin að hefjast hinn 8. apríl en var frestað vegna æfinga- og keppnisbanns vegna fjórðu bylgju kórónuveirufaraldursins.

Fyrsta umferð bikarkeppninnar fer fram dagana 23. apríl til 26. apríl og önnur umferðin verður leikin 30. apríl til 2. maí.

Liðin sem leika í úrvalsdeildinni koma inn í keppnina í 32-liða úrslitunum en þau fara fram dagana 22. júní til 24. júní.

Leikjaniðurröðun fyrir bikarkeppni karla má sjá með því að smella hér.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert