Kvennalandsliðið í öðrum styrkleikaflokki

Íslenska kvennalandsliðið hefur leik í undankeppni HM í september.
Íslenska kvennalandsliðið hefur leik í undankeppni HM í september. Ljósmynd/KSÍ

Íslenska kvennalandsliðið í knattspyrnu verður í öðrum styrkleikaflokki þegar dregið verður í riðla í undankeppni HM 2023 sem hefst í september.

HM 2023 fer fram í Ástralíu og Nýja-Sjálandi en íslenska liðið hefur aldrei áður tekið þátt í lokakeppni HM.

Kvennalandsliðið hefur hins vegar farið á þrjú Evrópumeistaramót og er á leið á sitt fjórða næsta sumar þegar EM 2022 fer fram á Englandi.

Þátttökuþjóðirnar á HM 2023 verða 32 talsins í fyrsta sinn en undanfarin ár hafa 24 þjóðir tekið þátt á HM.

Dregið verður í riðla fyrir undankeppnina föstudaginn 30. apríl en ásamt Íslandi eru Belgía, Sviss, Austurríki, Skotland, Rússland, Finnland, Portúgal og Wales öll í öðrum styrkleikaflokki og Ísland getur því ekki mætt þeim.

Styrkleikaflokkur 1: Danmörk, England, Frakkland, Holland, Ítalía, Noregur, Spánn, Svíþjóð, Þýskaland.

Styrkleikaflokkur 2: Austurríki, Belgía, Finnland, Ísland, Portúgal, Rússland, Skotland, Sviss, Wales.

Styrkleikaflokkur 3: Bosnía, Írland, Norður-Írland, Pólland, Rúmenía, Serbía, Slóvenía, Tékkland, Úkraína.

Styrkleikaflokkur 4: Albanía, Aserbaídsjan, Grikkland, Hvíta-Rússland, Ísrael, Króatía, Norður-Makedónía, Slóvakía, Ungverjaland.

Dregið verður í níu riðla fyrir undankeppni heimsmeistaramótsins og fara sigurlið undanriðlanna beint á HM. 

Liðin sem hafna í öðru sæti síns riðils þurfa að fara í umspil um tvö laus sæti til viðbótar en liðið með lakastan árangur í undankeppninni og umspilinu tekur þátt í tíu liða móti með liðum úr öðrum heimsálfum þar sem þrjú síðustu sætin á HM verða í boði.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert