Hallgrímur bestur í 2. umferð

Hallgrímur Mar Steingrímsson í leiknum gegn KR þar sem hann …
Hallgrímur Mar Steingrímsson í leiknum gegn KR þar sem hann skoraði tvö mörk og lagði eitt upp í 3:1 sigri KA-manna. mbl.is/Árni Sæberg

Hallgrímur Mar Steingrímsson úr KA er besti leikmaður 2. umferðar Pepsi Max-deildar karla í knattspyrnu hjá Morgunblaðinu. Hallgrímur skoraði tvö mörk og lagði eitt upp í 3:1-sigri KA-manna á KR í Vesturbænum á föstudagskvöldið og fékk tvö M fyrir frammistöðu sína.

Brynjar Ingi Bjarnason félagi hans í KA er eini leikmaðurinn sem er aðra umferðina í röð í liði umferðarinnar en hann fékk líka tvö M fyrir sinn leik gegn KR. Aðrir sem fengu tvö M og eru líka í liði umferðarinnar eru Máni Austmann Hilmarsson úr Leikni R. og Djair Parfitt-Williams úr Fylki.

Fleiri sóknarmenn eru í liðinu en síðast, enda voru skoruð 20 mörk í annarri umferð samanborið við sjö mörk í fyrstu umferðinni. Auk KA-manna eiga Keflvíkingar tvo leikmenn í liði umferðarinnar að þessu sinni.

Úrvalslið 2. umferðar má sjá í Morgunblaðinu í dag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert