Þurfa að bíða lengur eftir fyrsta sigrinum

Þróttur og Keflavík skildu jöfn í Keflavík.
Þróttur og Keflavík skildu jöfn í Keflavík. Mbl.is/Íris Jóhannsdóttir

Keflavík og Þróttur skildu jöfn, 2:2, í Pepsi Max-deild kvenna í fótbolta í Keflavík í dag. Keflavík er nú með tvö stig og Þróttur þrjú.

Keflavík fór betur af stað og eftir nokkrar fínar sóknir skoraði Aerial Chavarin eftir hornspyrnu á 10. mínútu í sínum fyrsta leik hér á landi. Reyndist það eina mark fyrri hálfleiks þrátt fyrir nokkra pressu frá Þrótti.

Sú pressa hélt áfram í seinni hálfleik og það skilaði sér í jöfnunarmarki á 53. mínútu er Shea Moyer skallaði í netið eftir hornspyrnu. Aðeins þremur mínútum síðar kom Elísabet Freyja Þorvaldsdóttir Þrótti yfir með marki af stuttu færi á fjærstönginni, 2:1.

Þróttarar héldu áfram að sækja næstu mínútu en nánast upp úr engu jafnaði varamaðurinn Amelía Rún Fjelsted á 67. mínútu úr fyrstu sókn Keflavíkur í seinni hálfleik. Eftir markið róaðist leikurinn nokkuð og urðu mörkin ekki fleiri.

Keflavík 2:2 Þróttur R. opna loka
90. mín. Það verða að minnsta kosti þrjár mínútur í uppbótartíma.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert