Húsvíkingar upp í annað sætið

Arnar Pálmi Kristjánsson skorar fyrsta mark leiksins.
Arnar Pálmi Kristjánsson skorar fyrsta mark leiksins. Ljósmynd/Hafþór Hreiðarsson

Völsungur fór í kvöld upp í annað sæti 2. deildar karla í fótbolta með 4:0-sigri á botnliði Fjarðabyggðar á heimavelli.

Arnar Pálmi Kristjánsson kom Völsungi yfir á 25. mínútu og Sæþór Olgeirsson bætti við marki á 38. mínútu og var staðan í hálfleik 2:0.

Ásgeir Kristjánsson bætti við þriðja marki Völsungs á 60. mínútu og korteri fyrir leikslok bætti Elvar Baldvinsson við fjórða og síðasta markinu.

Staðan:

  1. Þróttur V. 28
  2. Völsungur 23
  3. Njarðvík 22
  4. KV 22
  5. KF 20
  6. Haukar 19
  7. ÍR 16
  8. Reynir Sandgerði 16
  9. Magni 14
  10. Leiknir Fáskrúðsfirði 12
  11. Kári 6
  12. Fjarðabyggð 5
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert