KR fær liðsauka frá Val

Bergdís Fanney Einarsdóttir í leik með Val.
Bergdís Fanney Einarsdóttir í leik með Val. mbl.is/Eggert Jóhannesson

KR, sem er í efsta sæti 1. deildar kvenna í fótbolta, hefur fengið liðsauka frá Val fyrir lokasprettinn á Íslandsmótinu.

Bergdís Fanney Einarsdóttir er komin til liðs við KR-inga út þetta tímabil en hún er 21 árs gömul Skagastúlka sem hefur leikið með Val í hálft þriðja ár og spilað samtals 46 leiki í úrvalsdeildinni, 31 fyrir Val og 15 fyrir ÍA. 

Bergdís er framherji og skoraði 15 mörk fyrir ÍA í 1. deildinni árið 2018 en hún hefur leikið 31 leik með yngri landsliðum Íslands og skorað í þeim sjö mörk.

KR stendur vel að vígi á toppi 1. deildar eftir að hafa fallið úr úrvalsdeildinni í fyrra og er í góðri stöðu til að komast aftur upp í fyrstu tilraun.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert