Ótrúlegur sigur Keflavíkur á Breiðabliki

Davíð Snær Jóhannsson Keflvíkingur sækir að Antoni Ara Einarssyni markverði …
Davíð Snær Jóhannsson Keflvíkingur sækir að Antoni Ara Einarssyni markverði Breiðabliks í leiknum í kvöld. Ljósmynd/Víkurfréttir/Jóhann

Keflavík vann í kvöld ótrúlegan 2:0-sigur á Breiðabliki í Pepsi Max-deild karla í fótbolta á heimavelli. Breiðablik skapaði sér fullt af virkilega góðum færum, en inn vildi boltinn hreinlega ekki. Keflavík skapaði sér ekki mikið en skoraði mörkin. 

Breiðablik var mun sterkari aðilinn í fyrri hálfleik og skapaði sér nokkur úrvalsfæri. Hvað eftir annað varði Sindri Kristinn Ólafsson vel í marki Keflavíkur. Jason Daði Svanþórsson, Thomas Mikkelsen og Árni Vilhjálmsson komust allir í fín færi en fundu ekki leiðina framhjá Sindra.

Það var því algjörlega gegn gangi leiksins þegar Joe Gibbs kom Keflavík yfir á 43. mínútu. Anton Ari Einarsson í marki Breiðabliks gaf á Viktor Örn Margeirsson og Viktor spyrnti boltanum beint í Gibbs og í markið. Staðan í hálfleik var því 1:0, Keflavík í vil.

Breiðablik byrjaði seinni hálfleikinn á því að komast í gott færi því Mikkelsen slapp einn í gegn í blábyrjun hálfleiksins. Daninn setti boltann framhjá og það átti eftir að reynast dýrkept.

Strax í næstu sókn fékk Keflavík aukaspyrnu sem Ingimundur Aron Guðnason tók og hann sendi boltann hnitmiðað á kollinn á Frans Elvarssyni sem skoraði með fallegum skalla í bláhornið fjær og heimamenn því óvænt komnir í tveggja marka forystu.  

Thomas Mikkelsen fékk besta færi Breiðablik í seinni hálfleik en hann skaut í stöng úr vítaspyrnu á 55. mínútu. Breiðablik hélt áfram að skapa sér færi eftir það, en allt kom fyrir ekki og Keflavík fagnaði. 

Áfall fyrir Breiðablik

Breiðablik skapaði sér nægilega mörg færi til að vinna skrautlegan 7:2-sigur en þess í stað gekk nákvæmlega ekki neitt upp hjá liðinu fyrir framan markið. Breiðablik hefði getað spilað þrjá heila leiki í röð án þess að skora í kvöld, þetta var einfaldlega einn af þessum dögum. 

Frans Elvarsson skoraði annað mark Keflavíkur.
Frans Elvarsson skoraði annað mark Keflavíkur. Ljósmynd/Guðmundur Bjarki Halldórsson

Eftir glæsilega frammistöðu í Vínarborg gegn Austria Vín í Sambandssdeildinni í vikunni, er það áfall að mæta á heimavöll liðs í fallbaráttu og tapa. Breiðablik er nú sjö stigum á eftir toppliði Vals og í hættu á að missa bæði Val og Víking of langt frá sér. 

Þú skapar þína eigin heppni og Keflavíkurliðið barðist fyrir hverjum einasta bolta og skildi allt eftir á vellinum. Þjálfarateymi Keflavíkur á mikið hrós skilið fyrir að safna 16 stigum í kassann hingað til og vera sex stigum fyrir ofan fallsæti. Keflvíkingar litu ekki vel út framan af móti og voru að fá mörg mörk á sig. 

Keflavík hefur hingað til gert vel í að safna stigum gegn liðum í kringum sig, en það er stórt skref að mæta eins sterku liðið og Breiðabliki og vinna. Segja má að sigurinn sé sá fyrsti hjá Keflavík í sumar sem liðið er ekki í beinni samkeppni við, en markmið Keflavíkur hlýtur að vera að halda sæti sínu í deildinni á meðan Blikar ætla sér mun stærri hluti. 

Keflavík 2:0 Breiðablik opna loka
90. mín. Sindri Þór Guðmundsson (Keflavík) á skot framhjá Dagur Ingi vinnur boltann á hættulegum stað og leggur hann á Sindra sem rúllar honum rétt framhjá. Fínt færi hjá Keflavíkt til að bæta við þriðja markinu.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert