Smit í Þorlákshöfn og leik frestað

Ægismenn eru komnir í sóttkví.
Ægismenn eru komnir í sóttkví. Ljósmynd/Hafnarfréttir

Leik Ægis og Dalvíkur/Reynis sem fram átti að fara í 3. deild karla í fótbolta í Þorlákshöfn í kvöld hefur verið frestað þar sem kórónuveirusmit hafa komið upp í röðum Ægismanna.

Leikmenn Ægis eru komnir í sóttkví en Sunnlenska.is skýrir frá þessu og segja að nýr leiktími verði ákveðinn í samráði við KSÍ á næstu dögum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert