Skiptir úr Þór í KA

Jakob Snær Árnason í leik með Þór í fyrstu deildinni.
Jakob Snær Árnason í leik með Þór í fyrstu deildinni. Ljósmynd/Þórir Tryggvason

Knattspyrnumaðurinn Jakob Snær Árnason hefur skipt um félag á Akureyri, en hann hefur fært sig úr Þór og gengið til liðs við KA.

Jakob er 24 ára gamall og hefur alla tíð spilað með Þór, fyrir utan eitt sumar með KF í 3. deildinni árið 2017. Hann á 76 leiki í fyrstu deildinni og í þeim sex mörk frá árinu 2015. Hjá KA fær hann aftur á móti tækifæri til að leika í úrvalsdeild en KA er í 5. sæti Pepsi Max-deildarinnar og mætir Keflavík á þriðjudaginn í næstu viku, 3. ágúst.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert