Árbæingar styrkja sig

Fylkismenn hafa bætt við sig liðstyrk.
Fylkismenn hafa bætt við sig liðstyrk. Ljósmynd/Kristinn Steinn Traustason

Danski vængmaðurinn Malthe Rasmussen er genginn í raðir karlaliðs Fylkis í knattspyrnu og mun leika með liðinu út þetta tímabil.

Rasmussen, sem er 24 ára gamall, kemur frá VSK Aarhus í heimalandinu, sem leikur í þriðju efstu deild. Hann er uppalinn hjá Kolding en hefur einnig spilað með Middelfart.

Rasmussen er þegar kominn með leikheimild hjá Fylki og má því spila með liðinu í kvöld þegar Árbæingar fá nágranna sína úr Breiðholtinu, Leikni úr Reykjavík, í heimsókn í úrvalsdeild karla, Pepsi Max-deildinni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert