Sigur í fyrsta leik hjá U21 árs liðinu

Hákon Arnar Haraldsson.
Hákon Arnar Haraldsson. Ljósmynd/UEFA

U21 árs landslið karla í knattspyrnu fór vel af stað í dag í nýrri undankeppni EM og náði í þrjú stig í fyrsta leik sínum í keppninni. 

Ísland heimsótti Hvíta-Rússland en leikið var í borginni Brest nærri landamærunum við Pólland. Ísland hafði betur 2:1 og er því komið með 3 stig en liðið komst í lokakeppnina í síðustu keppni. 

Há­kon Arn­ar Har­alds­son, 18 ára leikmaður Köbenhavn í Danmörku, skoraði bæði mörkin en hann kom inn á sem varamaður strax á 5. mínútu leiksins þegar fyrirliðinn Brynjólfur Willumsson meiddist og þurfti að fara af velli.

Mörkin skoraði Hákon á 20. og 54. mínútu aður en  Aleksandr Shestyuk minnkaði muninn á 70. mínútu. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert