Keflavík í undanúrslit eftir átta marka leik

Joey Gibbs skoraði þrennu fyrir Keflavík.
Joey Gibbs skoraði þrennu fyrir Keflavík. Ljósmynd/Þórir Tryggvason

Átta mörk voru skoruð í Kórnum í Kópavogi í kvöld þegar Keflavík vann HK 5:3 í 8-liða úrslitum Mjólkurbikars karla í knattspyrnu. 

Keflavík er þar af leiðandi komið í undanúrslit bikarkeppninnar eins og Vestri og ÍA sem náðu því fyrr í kvöld. Nú stendur yfir leikur Fylkis og Víkings sem þurfti að framlengja. 

Joey Gibbs skoraði þrennu fyrir Keflavík í leiknum en Keflavík komst í 0:2, 1:3 og 2:4. Ástbjörn Þórðarson og Ari Steinn Guðmundsson skoruðu einnig. 

Fyrir HK skoruðaði Stefán Ljubicic tvívegis og Birnir Snær Ingason úr víti. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert