Pétur skoraði fjögur í fyrri hálfleik

Pétur Theódór Árnason var á skotskónum í kvöld.
Pétur Theódór Árnason var á skotskónum í kvöld. mbl.is/Árni Sæberg

Grótta tók sig til og rótburstaði Aftureldingu 8:0 í næstefstu deild karla á Íslandsmótinu í knattspyrnu á Seltjarnarnesi í kvöld. 

Pétur Theódór Árnason skoraði fjögur mörk fyrir Gróttu og öll í fyrri hálfleik. Grótta var 6:0 yfir að loknum fyrri hálfleik, ótrúlegt en satt. 

Kjartan Kári Halldórsson skoraði tvö mörk fyrir Gróttu og Kristófer Melsteð og Garíel Hrannar Eyjólfsson sitt markið hvor. 

Grótta er í 5. sæti deildarinnar með 35 stig en Afturelding er með 23 stig í 9. sæti. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert