Íslenska U15 ára landslið pilta í fótbolta mátti þola 3:4-tap gegn Finnlandi í vináttuleik í dag. Leikið var ytra.
Stígur Diljan Þórðarson skoraði eina mark Íslands í fyrri hálfleik en staðan eftir hann var 3:1, Finnlandi í vil. Kristján Sindri Kristjánsson og Elmar Freyr Hauksson gerðu mörk Íslands í seinni hálfleik.
Liðin mætast öðru sinni á fimmtudag klukkan 10 að íslenskum tíma.