Smit á Hlíðarenda

Guy Smit með boltann í höndunum í leik gegn Víkingi …
Guy Smit með boltann í höndunum í leik gegn Víkingi í sumar þar sem Leiknismenn unnu óvæntan sigur. Ljósmynd/Haukur Gunnarsson

Hollenski knattspyrnumarkvörðurinn Guy Smit er genginn til liðs við Valsmenn og hefur samið við þá til tveggja ára.

Valsmenn staðfestu þetta á samfélagsmiðlum sínum nú síðdegis en Leiknismenn höfðu áður skýrt frá því að Smit væri á leiðinni á Hlíðarenda.

Smit er 25 ára gamall og hefur varið mark Leiknis í Breiðholti undanfarin tvö ár. Fyrst í 1. deildinni og svo í úrvalsdeildinni á þessu ári þar sem hann lék alla 22 leiki liðsins og átti drjúgan þátt í halda því í deildinni.

Hann var varamarkvörður hjá Nijmegen í Hollandi þegar Hannes Þór Halldórsson, núverandi markvörður Vals, var í liðinu og var síðan varamarkvörður B-deildarliðsins FC Eindhoven. Hjá Leiknismönnum varð Smit því aðalmarkvörður í fyrsta skipti á ferlinum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert