Laskaður landsliðshópur mætir Liechtenstein

Andri Fannar Baldursson og Þórir Jóhann Helgason gætu báðir fengið …
Andri Fannar Baldursson og Þórir Jóhann Helgason gætu báðir fengið tækifæri í byrjunarliðinu í kvöld. mbl.is/Kristinn Magnússon

Íslenska karlalandsliðið í knattspyrnu mætir Liechtenstein í J-riðli undankeppni HM 2022 í knattspyrnu á Laugardalsvelli í kvöld en þetta er síðasti heimaleikur Íslands í undankeppninni.

Ísland er með 5 stig í fimmta og næstneðsta sæti riðilsins en síðustu tveir leikir undankeppninnar verða útileikir gegn Rúmeníu og Norður-Makedóníu í nóvember.

Íslenska liðið hefur unnið einn leik í undankeppninni til þessa en það var einmitt gegn Liechtenstein í Vaduz 31. mars þar sem þeir Birkir Már Sævarsson, Birkir Bjarnason, Guðlaugur Victor Pálsson og Rúnar Már Sigurjónsson skoruðu mörk Íslands í 4:1-sigri.

Ísak Bergmann Jóhannesson skoraði sitt fyrsta landsliðsmark gegn Armeníu á …
Ísak Bergmann Jóhannesson skoraði sitt fyrsta landsliðsmark gegn Armeníu á föstudaginn. Ljósmynd/Kristinn Steinn

Af þeim fjórum sem skoruðu mörk Íslands í Vaduz í mars er aðeins einn leikfær gegn Liechtenstein í kvöld en það er Birkir Bjarnason. Birkir Már Sævarsson tekur út leikbann, Guðlaugur Victor Pálsson dró sig óvænt úr landsliðshópnum í gær og Rúnar Már Sigurjónsson var ekki valinn fyrir verkefnið.

Ásamt Birki Má verða þeir Ari Freyr Skúlason og Ísak Bergmann Jóhannesson einnig í leikbanni í kvöld og geta því ekki tekið þátt í leiknum gegn Liechtenstein.

Þá eru þeir Brynjar Ingi Bjarnason og Mikael Anderson báðir tæpir vegna meiðsla en Brynjar Ingi hefur byrjað síðustu fjóra leiki íslenska liðsins í undankeppninni.

Birkir Már Sævarsson tekur út leikbann í kvöld.
Birkir Már Sævarsson tekur út leikbann í kvöld. mbl.is/Unnur Karen

Andri Lucas Guðjohnsen og Andri Fannar Baldursson eru hins vegar heilir heilsu og klárir í slaginn eftir að hafa misst af leiknum gegn Armeníu á Laugardalsvelli á föstudaginn síðasta vegna meiðsla.

Þá má leiða að því líkur að Andri Fannar komi inn í byrjunarliðið fyrir leikinn gegn Liechtenstein en hann lék stórt hlutverk í síðasta landsleikjaglugga þegar Ísland mætti Rúmeníu, Norður-Makedóníu og Þýskalandi á Laugardalsvelli í september.

Líklegt byrjunarlið Íslands: Elías Rafn Ólafsson - Alfons Sampsted, Hjörtur Hermannsson, Daníel Leó Grétarsson, Guðmundur Þórarinsson - Birkir Bjarnason, Andri Fannar Baldursson, Þórir Jóhann Helgason - Albert Guðmundsson, Viðar Örn Kjartansson, Jón Dagur Þorsteinsson.

Alfons Sampsted gæti leyst Birki Má Sævarsson af hólmi í …
Alfons Sampsted gæti leyst Birki Má Sævarsson af hólmi í stöðu hægri bakvarðar. mbl.is/Kristinn Magnússon
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert