Breytingar á þjálfarateymi Keflavíkur

Eysteinn Húni Hauksson og Sigurður Ragnar Eyjólfsson.
Eysteinn Húni Hauksson og Sigurður Ragnar Eyjólfsson. Ljósmynd/Kristinn Steinn

Sigurður Ragnar Eyjólfsson mun stýra liði Keflavíkur í efstu deild karla á Íslandsmótinu í knattspyrnu næsta sumar. 

Sigurður Ragnar og Eysteinn Hauksson stýrðu liðinu saman síðustu tvö tímabil en Eysteinn lætur nú af störfum hjá meistaraflokki. Í tilkynningu frá félaginu kemur fram Eysteinn sé enn þjálfari innan félagsins og í viðræðum við félagið um að halda því áfram. 

Haraldur Freyr Guðmundsson í leik með Keflavík gegn FH.
Haraldur Freyr Guðmundsson í leik með Keflavík gegn FH. mbl.is/Golli

 Haraldur Guðmundson, fyrrverandi fyrirliði Keflavíkur, verður Sigurði Ragnari til aðstoðar. Haraldur hættir því sem þjálfari Reynis í Sandgerði þar sem hann hefur þjálfað undanfarin fjögur ár og farið með liðið úr 4. deild upp í 2. deild. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert