Mannmergð á áritun hjá Söru Björk

Þónokkrir aðdáendur hafa fengið af sér mynd með Söru.
Þónokkrir aðdáendur hafa fengið af sér mynd með Söru. mbl.is/Óttar Geirsson

Mikið líf og fjör er í Kringlunni í dag þar sem Sara Björk Gunnarsdóttir áritar varning frá Heimavellinum frá klukkan eitt til þrjú.

Þegar ljósmyndari mbl.is mætti á staðinn um klukkan eitt hafði þegar myndast röð í áritunina og ljóst að fjöldi fólks vill nafn Söru á sinn varning. 

Sara Björk er fyrirliði íslenska kvennalandsliðsins í knattspyrnu en hún er nú í leyfi þar sem hún er barnshafandi.

Heimavöllurinn.is stóð fyrir viðburðinum.

Mikill áhugi er fyrir hendi.
Mikill áhugi er fyrir hendi. mbl.is/Óttar Geirsson
Röðin í Kringlunni áður en Sara mætti.
Röðin í Kringlunni áður en Sara mætti. mbl.is/Óttar Geirsson
Morgunblaðið/Óttar Geirsson
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert