Landsliðsþjálfarinn vill sjá miklu fleiri í stúkunni

Þorsteinn Halldórsson vill sjá 5.000 til 6.000 manns á heimaleikjum …
Þorsteinn Halldórsson vill sjá 5.000 til 6.000 manns á heimaleikjum kvennalandsliðsins. mbl.is/Eggert Jóhannesson

„Ég hefði viljað sjá fleiri stuðningsmenn í stúkunni,“ sagði Þorsteinn Halldórsson, þjálfari íslenska kvennalandsliðsins í knattspyrnu, á blaðamannafundi íslenska liðsins í höfuðstöðvum KSÍ í kvöld.

Ísland vann öruggan 5:0-sigur gegn Kýpur í C-riðli undankeppni HM 2023 á Laugardalsvelli í kvöld en íslenska liðið stjórnaði ferðinni allt frá fyrstu mínútu til þeirra síðustu.

Alls mættu 2.175 áhorfendur á leikinn í kvöld eftir heldur dræma mætingu á leikinn gegn Tékklandi á föstudaginn síðasta þar sem 1.474 voru á vellinum.

„Mér finnst stelpurnar eiga það skilið að fleiri mæti á völlinn og ég vil sjá 5.000 til 6.000 manns á vellinum þegar þær spila,“ sagði Þorsteinn.

Þær eru bara það góðar og eins og ég sagði áðan þá eiga þær það skilið,“ bætti landsliðsþjálfarinn við.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert