Formaður KSÍ sendir frá sér yfirlýsingu

Vanda Sigurgeirsdóttir.
Vanda Sigurgeirsdóttir. mbl.is/Kristinn Magnússon

Mbl.is hefur borist yfirlýsing frá Vöndu Sigurgeirsdóttur, formanni KSÍ. Þar segir hún meðal annars að húni muni ekki ræða persónuleg mál Eiðs Smára Guðjohnsen á opinberum vettvangi. 

Á yfirlýsingunni má skilja að hún sé send út til að útskýra hvers vegna formaður KSÍ hefur ekki veitt fjölmiðlum viðtöl vegna starfsloka Eiðs sem aðstoðarlandsliðsþjálfara fyrr í vikunni. 

Yfirlýsingin:

 „Líkt og fram hefur komið þá tóku stjórn KSÍ og Eiður Smári Guðjohnsen sameiginlega ákvörðun um starfslok hans sem aðstoðarþjálfari A-landsliðs karla. Í kjölfarið hafa fjölmiðlar leitað svara um málið.

Af sjálfsagðri virðingu við einkalíf Eiðs Smára þá höfum við, ég sem formaður KSÍ, stjórn og starfsfólk KSÍ, farið þá leið að tjá okkur ekki í smáatriðum um tildrög starfsloka hans. Við viljum ekki og getum ekki rætt hans persónulegu mál í fjölmiðlum. Þar þarf hann að stjórna ferðinni sjálfur. 

Ákvörðun sem þessi er alltaf þungbær, á sér langan aðdraganda og er ekki tekin nema að vel ígrunduðu máli. Aftur óskum við Eiði velfarnaðar og þökkum honum góð störf.

Stjórn KSÍ hefur þegar rætt og mun ræða áfram hvort ástæða sé til þess að hætta að veita hóflega áfengi að verkefnum loknum. 

Nú tekur við vinna við leit að nýjum aðstoðarþjálfara þar sem þjálfari liðsins, Arnar Þór Viðarsson, mun að sjálfsögðu ráða ferðinni.  Vonandi gengur sú leit hratt og örugglega fyrir sig og við finnum réttan aðila í starfið við hlið Arnars til að leiða áframhaldandi uppbyggingu á þessu unga og spennandi landsliði.

Kveðja,

Vanda Sigurgeirsdóttir, formaður KSÍ.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert