Liðsstyrkur til Vestmannaeyja

Sydney Carr
Sydney Carr Ljósmynd/ÍBV

Knattspyrnudeild ÍBV hefur samið við bandaríska leikmanninn Sydney Carr um að leika með liðinu í efstu deild kvenna á næsta ári. 

Sydney klárar háskóla í Bandaríkjunum í vor en hún var markahæsti leikmaður efstu deildar háskólaboltans tímabilið 2020-2021 þegar hún skoraði 16 mörk í 16 leikjum.

Einnig hefur hún verið valin í yngri landslið Bandaríkjanna.

Tilkynning ÍBV:

Bandaríska knattspyrnukonan Sydney Carr hefur gengið til liðs við ÍBV og mun leika með félaginu í efstu deild kvenna á næsta ári. Sydney klárar háskóla í Bandaríkjunum í ár en hún er í Seattle University. 

Í Seattle leikur Sydney með knattspyrnuliði skólans í efstu deild háskólaboltans og var markahæsti leikmaður efstu deildar á leiktíðinni 2020-21. Hún skoraði þar 16 mörk í 16 leikjum, auk þess að gefa sex stoðsendingar. Hún var valin WAC sóknarmaður ársins og auk þess í WAC liði ársins. 

Sydney hefur verið valin í bandarísku U17 og U19-ára landsliðin. 

ÍBV bindur miklar vonir við Sydney og bjóðum við hana velkomna til félagsins og Vestmannaeyja.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert