Hásteinsvöllur verður gervigrasvöllur

Til stendur að leggja gervigras á Hásteinsvöll.
Til stendur að leggja gervigras á Hásteinsvöll. Ljósmynd/Sigfús Gunnar

Til stendur að breyta Hásteinsvelli í Vestmannaeyjum í gervigrasvöll en knattspyrnulið ÍBV hafa leikið heimaleiki sína á vellinum frá árinu 1963. Þetta staðfesti Haraldur Pálsson, framkvæmdastjóri ÍBV, í samtali við Fréttablaðið.

Framkvæmdir við völlinn munu hefjast næsta haust og er vonast til þess að völlurinn verði orðinn tilbúinn áður en keppnistímabilið árið 2023 hefst.

Við skoðuðum hvert nýtingarhlutfall Hásteinsvallar hefur verið undanfarin ár og ræddum við ýmsa íþróttafulltrúa og framkvæmdastjóra hjá öðrum félögum til að skoða nýtingarhlutfall þeirra,“ sagði Haraldur í samtali við Fréttablaðið.

„Það var síðan efnt til félagsfundar þar sem niðurstöðurnar voru kynntar áður en kosið var um næstu skref félagsins. Stjórnin hafði ákveðnar hugmyndir um framtíðarsýn fyrir félagið sem var samþykkt á fundinum, þær hugmyndir horfðu til þess að byggt yrði félagsheimili við völlinn og handknattleikssalur, ásamt því að stækka knattspyrnuhúsið sem er hálfur völlur í dag.

Að lokum kusu félagsmenn um forgangsröðunina og það varð ofan á byrjað yrði á því að leggja gervigras og koma á flóðlýsingu á Hásteinsvöll,“ bætti Haraldur við í samtali við Fréttablaðið.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert