Keflavík samdi við bakvörð

Ásgeir Páll Magnússon skrifaði undir samning sem gildir út tímabilið …
Ásgeir Páll Magnússon skrifaði undir samning sem gildir út tímabilið 2023. Ljósmynd/Keflavík

Knattspyrnumaðurinn Ásgeir Páll Magnússon er genginn til liðs við Keflavík. Þetta tilkynnti félagið á samfélagsmiðlum sínum í gær.

Ásgeir, sem er 21 árs gamall bakvörður, kemur til félagsins frá Leikni frá Fáskrúðsfirði þar sem hann hefur leikið 85 leiki í deild og bikar.

Hann skrifaði undir tveggja ára samning við Keflvíkinga sem gildir út tímabilið 2023.

Austfirskir leikmenn hafa reynst okkur Keflvíkingum vel undanfarna áratugi en þar má nefna nokkra góða eins og Eystein Hauksson, Jóhann Ben. og núverandi leikmann okkar Dag Inga Valsson og vonum að Ásgeir passi vel inn í okkar flotta lið,“ segir meðal annars í tilkynningu Keflvíkinga.

Keflavík hafnaði í tíunda sæti úrvalsdeildarinnar með 21 stig og hélt þar með sæti sínu í efstu deild eftir að hafa verið nýliði í deildinni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert