Liðsstyrkur í Laugardalinn

Sæunn Björnsdóttir er gengin til liðs við Þrótt.
Sæunn Björnsdóttir er gengin til liðs við Þrótt. Ljósmynd/Knattspyrnufélagið Þróttur

Sæunn Björnsdóttir hefur gengið til liðs við Knattspyrnufélagið Þrótt á lánssamningi frá Haukum og mun leika með félaginu út árið. Sæunn sem er fædd árið 2001, er kraftmikill miðjumaður með mikla reynslu, m.a. úr efstu deild með Haukum og Fylki þar sem hún lék síðastliðið sumar. Í heild hefur hún leikið 135 leiki í meistaraflokki, þar af 34 í efstu deild. Þá hefur hún einnig leikið tvo leiki fyrir u19 ára landsliðið.  

„Sæunn Björnsdóttir er öflug viðbót við kvennalið Þróttar“ segir Kristján Kristjánsson, formaður Knattspyrnudeildar félagsins. „Hún hefur öðlast góða reynslu nú þegar og býr yfir hæfileikum sem nýtast munu liðinu vel þeirri miku samkeppni sem framundan er í efstu deild kvenna. Koma hennar undirstrikar enn og aftur að Þrótti er full alvara með að festa sig í deild hinna bestu."

Áður hafa þær Katla Tryggvadóttir, Ólöf Sigríður Kristinsdóttir, Danielle Marcano og Freyja Karín Þorvarðardóttir skrifað undir samning við Þrótt um að leika með liðinu á komandi tímabili.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert