Skagamenn kræktu í tvo Valsara

Christian Köhler í leik með Val gegn Keflavík.
Christian Köhler í leik með Val gegn Keflavík. Ljósmynd/Kristinn Steinn

Svíinn Johannes Vall og Daninn Christian Köhler, sem léku með Valsmönnum á síðasta tímabili, eru gengnir til liðs við Skagamenn í fótboltanum. Þeir hafa báðir samið við ÍA til tveggja ára.

Köhler er 25 ára miðjumaður sem lék 18 leiki með Valsmönnum í úrvalsdeildinni á síðasta ári og skoraði eitt mark. Hann lék áður með Esbjerg, Helsingör og Nordsjælland í Danmörku og Trelleborg í Svíþjóð, ásamt því að leika með danska U17 ára landsliðinu.

Vall er 29 ára gamall vinstri bakvörður sem lék einnig 18 leiki með Val í deildinni á síðasta ári. Hann lék áður með Ljungskile, Öster, Norrköping og Falkenberg í Svíþjóð og spilaði með sænska U17 ára landsliðinu.

Johannes Vall í leik með Val gegn Stjörnunni.
Johannes Vall í leik með Val gegn Stjörnunni. mbl.is/Sigurður Unnar Ragnarsson
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert