Sá markahæsti framlengir í Garðabæ

Emil Atlason hefur farið vel af stað í sumar.
Emil Atlason hefur farið vel af stað í sumar. Ljósmynd/Haukur Gunnarsson

Knattspyrnumaðurinn Emil Atlason hefur framlengt samning sinn við Stjörnuna. Emil hefur farið afar vel af stað í Bestu deildinni í sumar og skorað sex mörk í fyrstu sex leikjunum.

Emil kom til Stjörnunnar árið 2020 og hefur alls skorað 15 mörk í 44 leikjum. Ekki er tekið fram í tilkynningu Stjörnunnar hve lengi nýr samningur Emils gildir.  

„Við óskum honum innilega til hamingju með nýjan samning og hlökkum mikið til þess að fylgjast áfram með honum á þessu tímabili, sem og næstu tímabilum,“ segir í yfirlýsingu félagsins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert