Fimmtán nýliðar í íslenskum sigri í Eistlandi

Sólveig Larsen kom Íslandi yfir á 27. mínútu.
Sólveig Larsen kom Íslandi yfir á 27. mínútu. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Fimmtán nýliðar fengu skráðan sinn fyrsta A-landsleik kvenna í fótbolta í dag þegar Ísland sigraði Eistland 2:0 í vináttulandsleik í Pärnu.

Ísland tefldi fram U23 ára liði gegn A-landsliði Eista, allir leikmenn liðsins eru fæddir á árunum 1999 til 2004, og engin í íslenska hópnum er á meðal þeirra sem fara í lokakeppni EM á Englandi.

Aðeins þrír leikmenn af átján höfðu áður leikið A-landsleik og það voru tveir af nýliðunum, Sólveig Jóhannesdóttir Larsen og Dagný Rún Pétursdóttir, sem skoruðu mörkin og tryggðu íslenskan sigur.

Ísland náði forystunni á 27. mínútu þegar Sólveig Jóhannesdóttir Larsen fylgdi vel á  eftir í markteignum þegar markvörður Eista varði vel og skoraði af stuttu færi, 1:0 fyrir Ísland.

Mínútu síðar munaði engu að Diljá Ýr Zomers bætti við marki þegar eistneski markvörðurinn varði mjög vel frá henni.

Ásdís Karen Halldórsdóttir var nærri því að skora á 43. mínútu þegar hörkuskot hennar úr vítateignum var varið. Staðan í hálfleik var því 1:0, Íslandi í hag.

Eistar fengu gott færi í byrjun síðari hálfleiks, hörkuskot rétt yfir mark Íslands. Á 58. mínútu fékk Diljá Ýr Zomers langa sendingu innfyrir vörn Eista og skallaði yfir úthlaupandi markvörðinn en boltinn fór hárfínt framhjá markinu.

Ásdís Karen fékk tvöfalt dauðafæri á 60. mínútu þegar hún slapp innfyrir vörn Eistlands. Markvörðurinn varði frá henni, Ásdís fékk boltann aftur en skaut þá framhjá markinu.

Auður Scheving markvörður kom í veg fyrir að Eistar jöfnuðu á 69. mínútu þegar hún varði vel skalla af stuttu færi.

Ásdís Karen komst enn og aftur í færi á 73. mínútu þegar markvörðurinn varði frá henni af stuttu færi.

Ísland komst í 2:0 á 81. mínútu þegar Dagný Rún Pétursdóttir  skoraði af örstuttu færi eftir hornspyrnu Ásdísar  Karenar frá hægri.

Átta nýliðar voru í byrjunarliðinu en aðeins Hlín Eiríksdóttir fyrirliði, sem lék sinn 20. landsleik, Barbára Sól Gísladóttir og Ída Marín Hermannsdóttir, sem báðar léku sinn þriðja landsleik, höfðu áður leikið A-landsleiki.

Lið Íslands: Auður Scheving (Tinna Brá Magnúsdóttir 75.) – Barbára Sól Gísladóttir, Áslaug Dóra Sigurbjörnsdóttir, Arna Eiríksdóttir (Sóley María Steinarsdóttir 64.), Karen María Sigurgeirsdóttir – Katla María Þórðardóttir (Unnur Dóra Bergsdóttir 64.), Ásdís Karen Halldórsdóttir, Ída Marín Hermannsdóttir (Gyða Kristín Gunnarsdóttir 75.) – Hlín Eiríksdóttir (Birta Georgsdóttir 64.), Sólveig J. Larsen (Andrea Rut Bjarnadóttir 75.), Diljá Ýr Zomers (Dagný Rún Pétursdóttir 75.)

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert