Vestri upp um þrjú sæti

Pétur Bjarnason og félagar í Vestra fóru upp í sjötta …
Pétur Bjarnason og félagar í Vestra fóru upp í sjötta sæti. mbl.is/Óttar Geirsson

Vestri fór upp um þrjú sæti í Lengjudeild karla í fótbolta í dag er liðið vann Grindavík á heimavelli, 2:1.

Tómas Leó Ásgeirsson kom Grindavík yfir á 23. mínútu og var staðan í hálfleik 1:0, gestina í vil.

Vestri gafst hinsvegar ekki upp og Martin Montipo jafnaði á 55. mínútu. Elmar Atli Garðarsson skoraði svo sigurmarkið á 73. mínútu.

Vestramenn eru nú með 12 stig í sjötta sæti en Grindavík er enn í fimmta sæti með 13 stig.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert