Nína áfram í Árbænum

Nína Zinovieva verður áfram í Árbænum.
Nína Zinovieva verður áfram í Árbænum. Ljósmynd/Fylkir

Knattspyrnukonan Nína Zinovieva hefur skrifað undir nýjan samning við Fylki til lok ársins 2024. Hún er 15 ára gömul og uppalin í Árbænum og hefur spilað í gegnum alla yngri flokka félagsins. 

Þrátt fyrir ungan aldur hefur Nína spilað þrettán meistaraflokksleiki með Fylki og verið mikilvægur hlekkur í liðinu á þessu tímabili. Í júní síðastliðinn var hún valin í úrtakshóp u16 ára landsliðsins. 

Fylkir féll niður í fyrstu deildina á síðasta tímabili og er sem stendur í áttunda sæti. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert