Víkingur úr Reykjavík á enn möguleika á að enda í einu af tveimur efstu sætum Lengjudeildar kvenna í fótbolta, 1. deild, eftir 2:0-heimasigur á botnliði Hauka í kvöld.
Eftir markalausan fyrri hálfleik kom Emma Steinsen Jónsdóttir Víkingi yfir á 69. mínútu og Nadía Atladóttir gulltryggði sigurinn á lokamínútunni.
Víkingur er í fjórða sæti deildarinnar með 29 stig, fjórum stigum á eftir HK sem er í öðru sæti, þegar þrjár umferðir eru eftir.