Leikmaður Stjörnunnar frá út tímabilið

Adolf Daði Birgisson leikur ekki meira með Stjörnunni í sumar.
Adolf Daði Birgisson leikur ekki meira með Stjörnunni í sumar. Ljósmynd/Kristinn Steinn

Hinn 18 ára gamli Adolf Daði Birgisson leikur líklegast ekki meira með Stjörnunni á leiktíðinni vegna meiðsla.

Adolf hefur komið skemmtilega inn í lið Stjörnunnar í Bestu deildinni í fótbolta á leiktíðinni, skorað þrjú mörk og komið við sögu í 15 leikjum á sínu fyrsta alvörutímabili í efstu deild.

Ágúst Gylfason, þjálfari Stjörnunnar, staðfesti tíðindin í samtali við Fótbolta.net.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert