Framlengdi í Árbænum

Guðrún Karítas Sigurðardóttir verður áfram í Árbænum á næstu leiktíð.
Guðrún Karítas Sigurðardóttir verður áfram í Árbænum á næstu leiktíð. Ljósmynd/Fylkir

Knattspyrnukonan Guðrún Karítas Sigurðardóttir hefur framlengt samning sinn við Fylki.

Þetta kom fram í fréttatilkynningu sem félagið sendi frá sér í dag en samningur gildir út næsta keppnistímabil.

Hún hefur einnig leikið með ÍA, Stjörnunni, KR og Val á ferlinum en alls á hún að baki 85 leiki í efstu deild þar sem hún hefur skorað 16 mörk. Þá á hún að baki 16 landsleiki fyrir yngri landslið Íslands.

„Við Fylkismenn getum glaðst yfir þeim tíðindum að semja við leikmenn sem eru staðráðnir í því að hjálpa liðinu upp í deild þeirra bestu,“ segir meðal annars í tilkynningu Fylkis.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert