Víkingar unnu í kvöld stærsta sigur í efstu deild karla í fótbolta hér á landi í 29 ár þegar þeir rótburstuðu Leikni 9:0 í viðureign Reykjavíkurliðanna á Víkingsvellinum.
Fyrir Víkinga sjálfa er þetta metsigur í efstu deild en þeir höfðu áður mest unnið sex marka sigra, síðast 7:1 gegn Keflavík árið 2015.
Leiknir beið hinsvegar sinn langstærsta ósigur í efstu deild en liðið hafði áður tapað stærst 5:0 fyrir FH á síðasta tímabili og 5:0 fyrir KA fyrr á þessu tímabili.
Síðast skildu níu mörk lið að í efstu deild karla árið 1993 og þá áttu Víkingar einnig í hlut. Þá steinlágu þeir hinsvegar 10:1 gegn Skagamönnum á Akranesi.
Þetta er í áttunda sinn í sögu Íslandsmótsins sem leikur í efstu deild endar með níu marka mun eða meira. Metið eiga Valsmenn frá árinu 1934 þegar þeir völtuðu yfir Víkinga 13:1 á Melavellinum.
Þessir átta stærstu sigrar sögunnar eru eftirtaldir:
13:1 Valur - Víkingur R. 1934
12:2 Fram - Þróttur R. 1954
10:1 ÍA - Breiðablik 1973
10:1 ÍA - Víkingur R. 1993
9:0 Fram - Valur 1919
9:0 Valur - Víkingur R. 1945
9:0 ÍA - Keflavík 1959
9:0 Víkingur R. - Leiknir R. 2022