35 ár frá eftirminnilegu sigurmarki

Atli Eðvaldsson skoraði sigurmarkið gegn Norðmönnum í Ósló.
Atli Eðvaldsson skoraði sigurmarkið gegn Norðmönnum í Ósló.

Á þessum degi fyrir 35 árum vann Ísland glæsilegan útisigur á Norðmönnum í undankeppni Evrópukeppni karla í fótbolta þegar liðin mættust á Ullevaal í Ósló.

Atli Eðvaldsson skoraði sigurmarkið með hörkuskoti frá vítateig eftir aukaspyrnu Ólafs Þórðarsonar.

Sigurinn var ekki síst sætur í kjölfar þess að tveimur vikum áður hafði Ísland einnig unnið heimaleikinn gegn Noregi, þá 2:1 með mörkum Péturs Péturssonar og Péturs Ormslevs. 

Fyrir vikið varð Ísland í fjórða sæti riðilsins, á undan Norðmönnum sem urðu neðstir, og jafnir Frökkum sem enduðu í þriðja sæti á betri markatölu. Sovétríkin og Austur-Þýskaland urðu langefst í riðlinum og Sovétríkin komust á EM þar sem liðið lék til úrslita gegn Hollandi ári síðar.

Twitter-síðan „Áhugaverðar staðreyndir um íslenska knattspyrnu“ minnti á sigurinn í dag með því að birta sigurmark Atla:

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert