Ristarbrotnaði og verður ekki meira með

Brynjar Gauti Guðjónsson í leik með Fram.
Brynjar Gauti Guðjónsson í leik með Fram. Ljósmynd/Kristinn Steinn

Brynjar Gauti Guðjónsson, miðvörður karlaliðs Fram í knattspyrnu, varð fyrir því óláni að ristarbrotna á æfingu og leikur því ekki meira með liðinu á tímabilinu.

Fótbolti.net greinir frá.

Brynjar Gauti gekk til liðs við Fram í júlí síðastliðnum eftir að hafa verið hjá Stjörnunni og lék tíu leiki fyrir Framara í Bestu deildinni, þar sem hann skoraði tvö mörk.

Fimm leikir eru eftir af tímabilinu þar sem Bestu deildinni hefur verið skipt í efri og neðri hluta. Fram lauk deildarkeppninni í neðri hlutanum þar sem það er sex stigum fyrir ofan fallsæti og á fyrir höndum leiki gegn ÍA, FH, Leikni R., ÍBV og Keflavík í októbermánuði.

Vegna meiðslanna mun Brynjar Gauti ekki geta tekið þátt í leikjunum fimm.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert