Kveður fótboltann sem sú fjórða leikjahæsta

Ásgerður Stefanía Baldursdóttir fagnar marki í leik með Val.
Ásgerður Stefanía Baldursdóttir fagnar marki í leik með Val. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Tveir af reyndustu leikmönnum Íslands- og bikarmeistara Vals í knattspyrnu í kvennaflokki hafa ákveðið að leggja skóna á hilluna.

Elín Metta Jensen skýrði frá því í gærkvöldi að hún væri hætt eins og fram kom í morgun hér á mbl.is og Ásgerður Stefanía Baldursdóttir hefur einnig ákveðið að láta gott heita en hún staðfesti það í viðtali við Stöð2 Sport eftir að Valskonur tóku við Íslandsbikarnum á laugardaginn.

Ásgerður er 35 ára gömul og var að ljúka sínu nítjánda tímabili í meistaraflokki en hún kveður sem fjórða leikjahæsta konan í sögu efstu deildar kvenna hér á landi. Samtals spilaði hún 262 leiki í deildinni, einn fyrir uppeldisfélagið Breiðablik, síðan 218 fyrir Stjörnuna og nú loks 43 leiki fyrir Val þar sem hún hefur spilað frá árinu 2019. Aðeins Sandra Sigurðardóttir, Dóra María Lárusdóttir og Málfríður Erna Sigurðardóttir hafa leikið fleiri leiki í deildinni en hún.

Ásgerður Stefanía Baldursdóttir var sigursæl sem fyrirliði Stjörnunnar og síðan …
Ásgerður Stefanía Baldursdóttir var sigursæl sem fyrirliði Stjörnunnar og síðan sem leikmaður Vals. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Ásgerður var í lykilhlutverki á mesta sigurskeiði Stjörnunnar sem vann alla stóru titla sína í sögunni með hana á miðjunni. Hún varð fjórum sinnum Íslandsmeistari og þrisvar bikarmeistari með liðinu á árunum 2011 til 2016. Eftir komuna í Val hefur Ásgerður orðið þrisvar Íslandsmeistari og einu sinni bikarmeistari. 

Hún lék 10 A-landsleiki fyrir Íslands hönd og spilaði auk þess fimm leiki með Kristianstad í sænsku úrvalsdeildinni vorið 2015, í láni frá Stjörnunni, áður en tímabilið á Íslandi hófst.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert