VAR í úrslitaleik Íslands

Ísland mætir Portúgal eða Belgíu í úrslitaleik umspilsins.
Ísland mætir Portúgal eða Belgíu í úrslitaleik umspilsins. mbl.is/Kristinn Magnússon

Dómarar í umspilsleik íslenska kvennalandsliðsins í fótbolta, þar sem sæti á lokamóti HM í Ástralíu og Nýja-Sjálandi er undir, munu fá aðstoð frá VAR, myndbandsdómurum, en UEFA staðfesti tíðindin í dag.

Ísland mætir annaðhvort Portúgal eða Belgíu á útivelli í hreinum úrslitaleik um sæti á lokamóti HM í Ástralíu og Nýja-Sjálandi hinn 11. október næstkomandi. 

Portúgal og Belgía mætast í Portúgal 6. október og mætir sigurliðið íslenska liðinu í úrslitum umspilsins. Sigurvegarinn úr þeim leik fær sæti á heimsmeistaramótinu. 

UEFA hafði þegar staðfest að tæknin yrði í notkun á lokamótinu, rétt eins og á mótinu árið 2019. Þá var VAR-myndbandstækni einnig notuð á Evrópumótinu á Englandi í sumar og í útsláttarkeppni Meistaradeildarinnar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert