Hjá Val næstu þrjú árin

Sigurður Egill Lárusson verst Helga Guðjónssyni í leik Vals og …
Sigurður Egill Lárusson verst Helga Guðjónssyni í leik Vals og Víkings í ágúst. mbl.is/Kristinn Magnússon

Knattspyrnumaðurinn Sigurður Egill Lárusson hefur framlengt samning sinn við Val út tímabilið 2025.

Sigurður Egill var að verða samningslaus, en hefur nú ákveðið að framlengja samninginn sinn við Hlíðarendafélagið. Hann hefur verið hjá Val frá árinu 2013, í þrígang orðið Íslandsmeistari með liðinu og tvisvar bikarmeistari.

Leikmaðurinn hefur komið við sögu í átján deildarleikjum með Val á leiktíðinni og leikið sem vinstri bakvörður undanfarnar vikur, en hann hefur spilað sem kantmaður mestallan ferilinn

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert