Ísak mættur til Noregs

Ísak Snær Þorvaldsson yfirgefur Breiðablik og fer til Rosenborgar um …
Ísak Snær Þorvaldsson yfirgefur Breiðablik og fer til Rosenborgar um áramótin. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Knattspyrnumaðurinn Ísak Snær Þorvaldsson er mættur til Þrándheims í Noregi til að ganga frá félagaskiptum sínum frá Breiðabliki til Rosenborgar. Hann gengur formlega í raðir félagsins um áramótin og klárar því tímabilið með Breiðabliki.

Rosenborg er eitt stærsta félagið í norska fótboltanum. Hjá félaginu hittir Ísak fyrir liðsfélaga sinn hjá U21 árs landsliðinu, því Kristall Máni Ingason gekk í raðir Rosenborgar frá Víkingi úr Reykjavík á dögunum.

Blaðamaður Netavisen í Noregi birti mynd af Ísaki á flugvellinum í Þrándheimi, þar sem hann mun gangast undir læknisskoðun og skrifa undir samning.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert