Tuttugu stúlkur valdar fyrir mót í Portúgal

Bergdís Sveinsdóttir úr Víkingi er meðal leikmanna U17 ára liðsins …
Bergdís Sveinsdóttir úr Víkingi er meðal leikmanna U17 ára liðsins en hún skoraði fjögur mörk fyrir liðið á síðasta ári. Eggert Jóhannesson

Magnús Örn Helgason, þjálfari U17 ára landsliðs stúlkna í knattspyrnu, hefur valið 20 manna hóp fyrir alþjóðlegt mót sem fram fer í Portúgal í byrjun febrúar.

Breiðablik á flestar stúlkur í liðinu, sex talsins. Um fjögurra þjóða mót er að ræða og Ísland leikur gegn Portúgal 2. febrúar, Slóvakíu 5. febrúar og Finnlandi 7. febrúar.

Hópurinn er þannig skipaður:

Hrefna Jónsdóttir - Álftanes
Bryndís Halla Gunnarsdóttir - Breiðablik
Harpa Helgadóttir - Breiðablik
Herdís Halla Guðbjartsdóttir - Breiðablik
Hrafnhildur Ása Halldórsdóttir - Breiðablik
Margrét Brynja Kristinsdóttir - Breiðablik
Olga Ingibjörg Einarsdóttir - Breiðablik
Berglind Freyja Hlynsdóttir - FH
Emma Björt Arnarsdóttir - FH
Helga Rut Einarsdóttir - Grindavík
Ragnheiður Þórunn Jónsdóttir - Haukar
Katrín Rósa Egilsdóttir - HK
Krista Dís Kristinsdóttir - KA
Ísabella Sara Tryggvadóttir - KR
Lilja Björk Unnarsdóttir - Selfoss
Kolbrá Una Kristinsdóttir - Valur
Bergdís Sveinsdóttir - Víkingur R.
Sigdís Eva Bárðardóttir - Víkingur R.
Sigurborg Katla Sveinbjörnsdóttir - Víkingur R.
Angela Mary Helgadóttir - Þór

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert