Flóki áfram í Vesturbænum

Kristján Flóki Finnbogason.
Kristján Flóki Finnbogason. Ljósmynd/Kristinn Steinn

Knattspyrnumaðurinn Kristján Flóki Finnbogason hefur skrifað undir nýjan þriggja ára samning við KR.

Kristján Flóki er 28 ára gamall sóknarmaður sem er uppalinn í FH. Hann gekk í raðir KR árið 2019 frá Start í Noregi en hann var áður á mála hjá FC Köbenhavn. 

KR-ingurinn missti af stærsta hluta síðasta tímabils vegna meiðsla en náði hluta af lokaspretti deildarinnar þar sem hann skoraði tvö mörk. Hann hefur skorað 28 mörk í 104 leikjum í efstu deild hér á landi.

„Við óskum Flóka til hamingju með nýjan samning og hlökkum til áframhaldandi samstarfs,“ sagði Vesturbæjarfélagið í tilkynningunni. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert