Áfram í Vestmannaeyjum

Júlíana Sveinsdóttir í leik með ÍBV síðasta sumar.
Júlíana Sveinsdóttir í leik með ÍBV síðasta sumar. mbl.is/Kristinn Magnússon

Knattspyrnukonan Júlíana Sveinsdóttir hefur framlengt samning sinn við ÍBV.

Þetta tilkynnti félagið á heimasíðu sinni í dag en samningurinn gildir út keppnistímabilið 2024.

Varnarmaðurinn, sem er 25 ára, hefur verið í lykilhlutverki hjá uppeldisfélagi sínu undanfarin ár en alls á hún að baki 108 leiki fyrir félagið í efstu deild þar sem hún hefur skorað eitt mark.

Þá varð hún bikarmeistari með Eyjaliðinu árið 2017 og hún lék einnig úrslitaleikinn 2016 þegar ÍBV hafnaði í öðru sæti í bikarkeppninni.

„Hún hefur verið traustur leikmaður liðsins undanfarin ár, eða allt frá því að hún lék sinn fyrsta meistaraflokksleik árið 2015,“ segir meðal annars í tilkynningu ÍBV.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert